HBO hefur um langt árabil verið samnefnari fyrir vandað sjónvarpsefni en efni frá þeim hefur hlotið ótal Golden Globe og Emmy tilnefningar og verðlaun. Þættir eins og Game of Thrones, Chernobyl, The Wire, Sex in the City, Curb Your Enthusiasm, Band of Brothers og Mare of Easttown eru dæmi um þætti sem allir koma úr smiðju HBO, þættir sem sjónvarpsaðdáendur um allan heim þekkja.
House of the Dragon, þættir sem gerast í söguheimi Game of Thrones og hafa aldrei verið aðgengilegir á Íslandi munu birtast í dag í Sjónvarpi Símans Premium og strax á nýju ári mun efni frá HBO bætast við jafnt og þétt í Sjónvarp Símans Premium.
„Við erum afskaplega ánægð að hafa náð samningum við HBO en hið frábæra efni þeirra fellur vel að efnisveitunni okkar Sjónvarpi Símans Premium. Hér er um að ræða gæðaefni fyrir kröfuharða áhorfendur sem mun festa okkur enn betur í sessi sem leiðandi efnisveitu á Íslandi enda höfum við nú samninga við alla bestu framleiðendur heims ásamt því að vera heimili enska boltans á Íslandi“ segir Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum.
Fjöldi nýrra þáttaraða eru væntanlega á nýju ári frá HBO og má þar helst nefna The Last of Us með Pedro Pascal í aðalhlutverki sem byggja á einhverjum þekktustu tölvuleikjum síðari ára og mikil eftirvænting er eftir, White House Plumbers með Woody Harrelson sem fjalla um skipuleggjendur þess sem seinna varð Watergate hneykslið. Við erum einnig sérstaklega spennt fyrir The White Lotus sem áhorfendur og gagnrýnendur vestanhafs geta ekki hætt að dásama.