Hver er Hera Hilmarsdóttir? Hver er persónan bak við nafnið? Í þáttaröðinni Hver ertu? grandskoðum við ættartré nokkurra þjóðþekktra Íslendinga. Hvaðan eru þeir? Við teljum okkur þekkja þessa einstaklinga ágætlega, höfum myndað okkur skoðanir á þeim en hvað vitum við um þau og hvað vita þau sjálf um uppruna sinn? Við förum í ferðalag með þessu ágæta fólki um slóðir fortíðar og upprunans, stundum torfarnar slóðir og finnum ræturnar. Við fáum svör við spurningum sem stundum svala forvitninni og stundum varpa ljósi á áður óþekkta hluti.
Þættirnir bjóða upp á skemmtilegt og fræðandi ferðalag með ykkar besta fólki hérlendis og erlendis. Hverra manna eru þau, hverjar eru ættir þeirra, eru forfeður þeirra snillingar, draumórafólk, letingjar eða dugnaðarforkar. Allir eiga sér sögu ef grannt er skoðað, og oft á tíðum merkilega og áhugaverða. Við ætlum að draga fram sögur um okkar fólk, gera þær ljóslifandi, með það eitt í huga að skrásetja og varðveita þann fjársjóð sem hver og einn á í fólkinu sínu og lífshlaupi.