Í versta falli

03. október 2026

Ný íslensk gamanþáttaröð, Í versta falli, verður frumsýnd í heild sinni í Sjónvarpi Símans Premium 3. desember. Þættirnir eru sex talsins og segja á beittan og sprenghlægilegan hátt frá Katrínu, ungri konu sem reynir að koma lífi sínu í réttan farveg þrátt fyrir að allt í kringum hana virðist stöðugt vera við það að fara úr böndunum.

imageHero

Líf Katrínar væri líklega dans á rósum ef móðir hennar væri edrú, systir hennar ekki í stöðugum vandræðum, karlmenn aðeins almennilegri og moldríki yfirmaðurinn ekki svona grunsamlegur. Eftir því sem vandamálin hrannast upp verður þó sífellt óljósara hvort óheppnin elti Katrínu eða hvort hún hafi sjálf einstakt lag á að flækja líf sitt.

Í versta falli er gamandrama um fjölskyldubönd, ástina, óuppgerða fortíð og þá eilífu von að á morgun takist okkur loksins að hafa stjórn á eigin tilveru. Þættirnir nálgast alvarleg viðfangsefni af hlýju og húmor og draga upp kunnuglega mynd af fólki sem gerir sitt besta, þótt það fari sjaldnast alveg samkvæmt áætlun.

Handrit þáttanna skrifar Anna Hafþórsdóttir, sem jafnframt fer með eitt aðalhlutverkanna. Með henni fara Eygló Hilmarsdóttir, Atli Óskar Fjalarsson og Guðmundur Ingi Þorvaldsson með stór hlutverk, auk fjölda þjóðþekktra leikara. Helgi Jóhannsson og Hörður Sveinsson leikstýra þáttunum, Birgitta Björnsdóttir er framleiðandi og framleiðslufyrirtækið Vintage Pictures stendur að baki verkefninu.