Brotið blað (og sími) í sögu Apple – iPhone Duo, iPhone 18 Pro og fleiri nýjungar
10. september 2026
Fyrsti samanbrjótanlegi iPhone sögunnar, splunkuný Pro-lína með enn betri myndavélum og rafhlöðuendingu, nákvæmustu hjartsláttarmælingar í snjallúri til þessa og endurhönnuð hljóðtækni í AirPods 5, voru meðal þess sem Apple svipti hulunni af í gær á haustkynningunni sinni.

Straumhvörf urðu í gær í beinu streymi þegar Apple kynnti til sögunnar fyrsta samanbrjótanlega iPhone sögunnar. Auk þess svipti Apple hulunni af iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max símunum sem taka stórt stökk í afköstum, rafhlöðuendingu og myndavélatækni.
Ekkert lát var á nýjungum frekar en venjulega á haustkynningu Apple. Tvö ný snjallúr, Apple Watch Series 12 og Watch Ultra 4, bjóða upp á nákvæmustu hjartsláttarmælingar í snjallúri til þessa. Þá eru væntanleg AirPods 5 með enn betri hljóm og lengri rafhlöðuendingu. Hvað meira er hægt að biðja um!
Hér förum við yfir það helsta sem Apple kynnti til leiks.
iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max
Nýju Pro-símarnir taka stórt stökk í afköstum, myndavélatækni og rafhlöðuendingu. Báðir eru knúnir áfram af nýrri A20 Pro-flögu sem ræður við enn þyngri verkefni og vinnur með nýrri kynslóð gufukælingar sem dreifir hita betur og hjálpar símunum að halda miklum afköstum lengur.
Myndavélin fær líka stórar uppfærslur. Ný 48 MP Fusion-aðalmyndavél kemur með stillanlegu ljósopi í fyrsta sinn í iPhone. Ljósopið aðlagast sjálfkrafa birtu og dýptarskerpu sem skilar betri myndum við litla birtu, skarpari smáatriðum og meiri stjórn á myndatökunni.
Rafhlaðan hefur einnig fengið góða yfirhalningu. iPhone 18 Pro býður upp á allt að 36 klukkustunda myndspilun á einni hleðslu, en Pro Max nær allt að 45 klukkustundum. iPhone 18 Pro Max getur auk þess boðið upp á allt að 30 klukkustunda almenna notkun á einni hleðslu.
Og ef rafhlaðan er að tæmast á ögurstundu er hraðhleðslan öflug. iPhone 18 Pro nær allt að 50% hleðslu á um 15 mínútum og aðeins fimm mínútna hleðsla getur gefið iPhone 18 Pro Max allt að sjö klukkustunda myndspilun.
iPhone Duo
Sögulegur vendipunktur hjá Apple, fyrsti samanbrjótanlegi iPhone frá upphafi! Hér var ekki verið að brjóta blað í sögunni, heldur síma.
Þegar iPhone Duo er opinn er hann þynnsti iPhone frá upphafi og skartar stærsta iPhone-skjá sem Apple hefur framleitt. Innri skjárinn er 7,6 tommu Super Retina XDR-skjár og um 50% stærri en skjárinn á iPhone 18 Pro Max. Að utan er svo annar skjár sem býður upp á meira en 90% af skjástærð iPhone 18 Pro.
Samanbrjótanlega formið opnar á ýmsa nýja möguleika. Hægt er að nota öpp hlið við hlið, vinna í þeim samtímis eða stilla símanum upp þannig að þú getir tekið FaceTime-símtal eða myndband án þess að halda á honum.
Myndavélin er 48 MP Dual Fusion og býður upp á nýjar leiðir til myndatöku. Meðal annars er hægt að taka 48 MP ljósmyndir og 4K myndband í allt að 120 römmum á sekúndu. A20 Pro-flaga sér um kraftinn og tvöfalt rafhlöðukerfi á að tryggja rafhlöðuendingu yfir daginn.
AirPods 5
AirPods 5 fá töluverða uppfærslu, ekki síst þegar kemur að virkri hljóðeinangrun (ANC) og hljómgæðum. Hægt er að fá heyrnartólin í tveimur útgáfum, með hinum hefðbundna hleðsluhulstri sem við þekkjum öll eða nýju þráðlausu hleðsluhulstri.
Ný hljóðhönnun og næsta kynslóð Adaptive EQ skilar betri og nákvæmari hljómi. Virk hljóðeinangrun (ANC) dregur úr allt að 50% meiri umhverfishávaða en AirPods 4.
Adaptive Audio aðlagar hljóðeinangrunina sjálfkrafa að umhverfinu á meðan Transparency-stillingin hleypir umhverfishljóðum inn þegar þú vilt heyra hvað er að gerast í kringum þig. Conversation Awareness lækkar síðan sjálfkrafa hljóðstyrkinn þegar þú byrjar að tala við einhvern. Personalized Spatial Audio lætur hljóðið umlykja þig þegar þú hlustar á tónlist, horfir á kvikmyndir eða spilar leiki.
AirPods 5 bjóða upp á allt að 4 klukkustunda hlustun með virkri hljóðeinangrun á einni hleðslu og allt að 20 klukkustundir samtals með USB-C hleðsluhulstrinu. Útgáfan með þráðlausa hleðsluhulstrinu bætir við lengri rafhlöðuendingu og með þeim færðu allt að 5 klukkustunda hlustun með virki hljóðeinangrun og allt að 22 klukkustundir samtals með hleðsluhulstrinu.
Apple Watch Series 12
Apple heldur áfram að leggja mikla áherslu á heilsu í Apple Watch og Series 12 fær nýtt skynjarakerfi sem fylgist enn betur með hjartanu.
Endurbættir ljós- og rafskynjarar vinna með S11-flögunni og stærri, orkunýtnari LED-ljós veita ítarlegri upplýsingar um hjartslátt og heilsu.
Úrið getur mælt breytileika hjartsláttar, eða HRV, á allt að fimm mínútna fresti og tekið hjartsláttarmælingar í bakgrunni á fimm sekúndna fresti.
Ný virkni gefur þér jafnframt einfalt skor á hverjum morgni sem tekur mið af hreyfingu, heilsumælingum og svefni og hjálpar þér að sjá hversu tilbúinn líkaminn er fyrir daginn fram undan.
Apple Watch Series 12 fær einnig nákvæmari skrefatalningu, ítarlegri æfingamælingar og nýjar upplýsingar frá Workout Buddy.
Apple Watch Ultra 4
Apple Watch Ultra 4 er áfram stóri bróðirinn í snjallúrafjölskyldunni og hannað fyrir þau sem vilja meira út úr æfingum og útivist.
Úrið býður upp á allt að 50 klukkustunda rafhlöðuendingu við daglega notkun, allt að 18 klukkustundir við hefðbundna æfingamælingu og allt að 45 klukkustundir í Max Extended Workout-stillingu.
Nákvæmt GPS-kerfi með tvöfaldri tíðni, ítarlegri heilsu- og hreyfimælingar og nýtt skynjarakerfi gera Ultra 4 sérstaklega öflugt fyrir hlaup og lengri æfingar.
Líkt og Series 12 getur Ultra 4 fylgst mun oftar með hjartslætti og HRV og veitt betri innsýn í hvernig líkaminn bregst við æfingum, álagi, svefni og endurheimt.
Með öðrum orðum: meiri upplýsingar um líkamann, lengri rafhlöðuending og meira úthald fyrir þau sem ætla sér aðeins lengra.