Tilbaka
Tilbaka
Til baka
Senda fyrirspurn

Veldu erindi

Fylltu út eitt af neðantöldu!

Takk fyrir!

Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.
Texti undir formi1
Texti undir formi2
Viðhengi texti
Hleð inn skrá...
fileuploaded.jpg
Upload failed. Max size for files is 10 MB.
Texti falinn
0
Ertu hjá Símanum?
Verð samtals:
22.000
kr./ mán.
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Til baka
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2021-11-03
Íslenskan þarf ykkar hjálp!

Íslenskan þarf ykkar hjálp!

Reddum málinu er vinnustaðakeppni þar sem fyrirtæki og stofnanir keppast við að lesa texta í gegnum tölvu eða snjalltæki. Um er að ræða stuttar setningar á íslensku sem fara í gagnagrunn Samróms sem hægt er að nota til að kenna tækjum og tölvum að skilja íslensku.  Keppnin er samstarfsverkefni Almannaróms, Háskólans í Reykjavík og Símans og fer fram á vefnum reddummalinu.is.

Íslenskan þarf ykkar hjálp!

Íslenskan þarf ykkar hjálp!

Reddum málinu er samstarfsverkefni Almannaróms - Miðstöðvar máltækni, Háskólans í Reykjavík og Símans. Átakið byggir á Samrómi, lausn sem safnar raddsýnunum saman og hafa nú þegar einstaklingar lagt lið með upplestri á yfir 1.100.000 setningum.

Reddum málinu hefst mánudaginn 8. nóvember og lýkur þann 16. nóvember.

Tæknin teygir anga sína inn í alla kima samfélagsins, við erum orðin háð henni við leik og störf. Þróun tallausna í snjalltækjum er hröð og ljóst að tæknin muni snerta á enn fleiri þáttum okkar daglega lífs í náinni framtíð.

Við þurfum því að kenna tækjunum okkar að skilja íslensku, til að við getum talað við tækin á íslensku, og þau geti svarað okkur á íslensku. Aðeins þannig tryggjum við framtíð íslenskunnar og sjáum til þess að tungumálið okkar, saga og menning verði hluti af stafrænni framtíð.

Tungumál eru lifandi og breytast í takt við tíðarandann. Íslenskan er allskonar og mestu máli  skiptir að við notum tungumálið.

Að tryggja framtíð íslenskunnar er því eitt mikilvægasta samstarfsverkefni þjóðarinnar. Gefum íslenskunni nokkrar mínútur og reddum málinu.
Grein1 myind

Grein2 mynd
Grein2 mynd
Grein2 mynd
Komdu til Símans

Tryggðu framtíð íslenskunnar

Taktu þátt með því að lesa stuttar setningar á íslensku sem fara í gagnagrunn Samróms. Setningarnar eru notaðar til að kenna tækjum og tölvum að skilja íslensku. ‍