Kraftmikið sjónvarpshaust

04. október 2026

Október markar upphaf bandaríska sjónvarpshaustsins í Sjónvarpi Símans Premium með fjöldan allan af spennandi frumsýningum.

imageHero

Dagskráin í október býður upp á fjölbreytta blöndu af spennu, glæpum, dramatík, hasar og húmor. Hvort sem áhorfendur vilja fylgjast með lögreglu leysa flókin mál, kynnast nýjum persónum eða hitta gamlar hetjur, ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Meðal þáttaraða eru Marshals, CIA, Sheriff Country, Boston Blue, NCIS: New York, Eternally Yours og Cupertino. Þá snúa kunnuglegar andlit aftur á skjáinn í FBI, 9-1-1, Chicago Med, Law & Order, Fire Country, NCIS: Origins, Elsbeth og NCIS.



Besta íslenska sjónvarpsveitan

Sjónvarp Símans Premium hefur samkvæmt könnun maskínu mikla yfirburði sem besta íslenska streymisveitan. Þar kemur saman sterkt framboð af íslenskri dagskrárgerð, vinsælustu erlendu sjónvarpsþættirnir og aðgangur að öflugum alþjóðlegum efnisveitum.

Með Sjónvarpi Símans Premium fylgir aðgangur að HBO Max og Hayu ásamt nýju bresku efnisveitunni BritTV. Viðskiptavinir fá þannig íslenskt gæðaefni, stórar alþjóðlegar þáttaraðir, kvikmyndir, raunveruleikaþætti og vandað breskt sjónvarp í einni áskrift.

Sjónvarp Símans Premium heldur þannig áfram að styrkja stöðu sína sem áfangastaður fyrir íslenska dagskrárgerð og besta erlenda sjónvarpsefnið. Fram undan er viðburðaríkur október og enn fleiri stórar frumsýningar þegar líður á veturinn.

Kraftmikið haust í sjónvarpi – Síminn