Reykjavík 30. september 2022
Í tilkynningu um verðbreytingar sem kynntar voru þann 1.ágúst 2022 notaði Síminn kerfislegt heiti yfir pósthólfaþjónustu en ekki það heiti sem birtist á reikningi. Þar sem einhverjum gæti þótt óljóst á hvaða þjónustu verð væri að breytast mun verðbreytingin ekki taka gildi fyrr en þann 1. nóvember 2022.
Síminn mun leiðrétta þessi mistök við viðskiptavini sem fyrst og sú inneign sem myndast verður notuð til lækkunar á október reikningi.
Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.
Ef eitthvað er óljóst hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustuver Símans í 550-6000, netspjall á siminn.is eða tölvupósti á siminn@siminn.is