Lokað í verslunum Símans á þjóðhátíðardaginn
17. júní 2026
Í dag, 17. júní, fögnum við þjóðhátíðardegi Íslands. Netspjall Símans er opið frá kl. 11–19 en verslanir Símans eru lokaðar í dag.

Í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní eru verslanir Símans í Ármúla, Smáralind og á Akureyri lokaðar í dag. Netspjall Símans verður hins vegar opið frá kl. 11–19 og þjónustuverið verður til staðar á netspjalli á sama tíma.
Við óskum landsmönnum gleðilegs þjóðhátíðardags og vonum að þið njótið dagsins vel.
Hér má finna opnunartíma verslana okkar og þjónustuvers.