Lokun 2G og 3G
06. júní 2024
Síminn eins og önnur fjarskiptafélög á Íslandi hefur tilkynnt um lokun á 2G og 3G farsímakerfum sínum. Áætlað er að þau kveðji með öllu í lok árs 2025.

Síminn eins og önnur fjarskiptafélög á Íslandi hefur tilkynnt um lokun á 2G og 3G farsímakerfum sínum. Slökkt verður á kerfunum nú í haust en kerfin eru komin til ára sinna og hafa sinng hlutverki sínum með miklum sóma um allt land í fjölda ára.
Ný og betri tækni tekur við keflinu sem færir viðskiptavinum Símans meiri hraða, lægri svartíma og betri upplifun að öllu leiti. Innviðir farsímakerfa eru takmörkuð auðlind og skapa þarf pláss fyrir nýja tækni sem og tækni framtíðarinnar með því að kveðja eldri tækni.
Lokun 2G og 3G getur haft áhrif á einstaklinga og fyrirtæki ef þau eru að notast við búnað sem ekki styður 4G og nýrri tækni. Þannig geta mælar, öryggiskerfi, neyðarsímar, öryggishnappar og fjarstýrð tæki sem notast við farsímakerfin hætt að virka ef þau styðja ekki við nýrri tækni. Einnig gildir þetta um eldri farsíma, spjaldtölvur o.fl. sem aðeins styður 2G eða 3G.
Við hvetjum því viðskiptavini Símans til að kanna málin í tíma og bregðast við ef þarf svo truflanir verði ekki þegar loks verður slökkt í lok árs 2025.