Nýja efnisveitan BritTV

20. ágúst 2026

Glænýja efnisveitan BritTV fer í loftið um miðjan september og sérhæfir sig í vönduðu bresku sjónvarpsefni.

imageHero

Glænýja efnisveitan BritTV fer í loftið um miðjan september og sérhæfir sig í vönduðu bresku sjónvarpsefni. Efnisframboðið kemur meðal annars frá BBC og All3Media og hefur verið framleitt fyrir helstu sjónvarpsstöðvar Bretlands, þar á meðal BBC, ITV og Channel 4, auk alþjóðlegra streymisveitna.

Sígildir þættir og nýjar spennuseríur

BritTV sameinar klassískar þáttaraðir og nýtt breskt gæðaefni. Þar verður meðal annars að finna bresku útgáfuna af The Office, Little Britain og Luther, ásamt spennuþáttunum The Missing og Baptiste.

Af nýrri þáttaröðum má nefna The Assassin, með Keeley Hawes og Freddie Highmore, sem hlaut afar góðar viðtökur þegar hún var frumsýnd á Prime Video. Einnig verða í boði I Fought the Law, Ridley og The Catch, auk glænýju spennuþáttaraðarinnar Gone, með Eve Myles og David Morrissey í aðalhlutverkum en þetta er aðeins lítið brot af því sem verður í boði strax í byrjun. Auk þess sem ný bresk þáttaröð bætist við í hverri viku.

Fjórir öflugir efnisheimar í einni áskrift

„Við erum stöðugt að leita nýrra leiða til að efla efnisframboðið og skapa meira virði fyrir áskrifendur Sjónvarps Símans Premium. Á síðasta ári bættust HBO Max og Hayu við flóruna og nú leitum við til Bretlands með opnun BritTV. Þar sameinum við nýjar þáttaraðir og sígild bresk meistaraverk í öflugum efnisheimi sem færir áskrifendum enn meira úrval. Með BritTV fá viðskiptavinir nú fjóra sterka efnisheima í einni áskrift: Sjónvarp Símans Premium, HBO Max, Hayu og BritTV,“ segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum.

Aðgangur að BritTV efnisveitunni fylgir með Sjónvarpi Símans Premium.