Röskun er komin í Sjónvarp Símans Premium
27. mars 2026
Ein umtalaðasta íslenska kvikmynd ársins, Röskun, er nú komin í Sjónvarp Símans Premium eftir vel heppnaða sýningu í kvikmyndahúsum landsins.

Sálfræðitryllirinn Röskun, í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar, vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd á dögunum. Myndin hlaut lof gagnrýnenda sem og áhorfenda fyrir grípandi söguþráð, sterka leikara og áhrifamikla framsetningu.
Íslenskur sálfræðitryllir
Röskun segir frá lögfræðingnum Heru, sem er leikin af Þuríði Blævi Jóhannsdóttur, sem er enn að jafna sig eftir að hafa orðið fyrir árás árinu áður. Hún flytur í kjallaraíbúð í gamla Vesturbænum og svo fara undarlegir hlutir að gerast í íbúðinni. Hera veit ekki hvort hún sé farin að missa vitið, hvort það sé reimt í íbúðinni eða draugar fortíðar ásækja hana. Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Unnur Birna Backman fara með aðalhlutverk í myndinni.

Hjónin Bragi Þór Hinriksson og Helga Arnardóttir framleiða myndina ásamt Valdimari Kúld. Helga skrifaði jafnframt handrit myndarinnar upp úr spennusögunni Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur.
Auk Þuríðar Blævar og Unnar Birnu fara þau Kolbeinn Arnbjörnsson, Arnar Dan Kristjánsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Damon Younger með hlutverk í myndinni.
Fyrstu tveir þættirnir eru komnir í Sjónvarp Símans Premium.


