Símamótið fer fram um helgina

08. júlí 2026

Símamótið í fótbolta fer fram dagana 9. til 12. júlí þar sem fjöldi ungra stelpna reima á sig takkaskóna á einum glæsilegasta íþróttaviðburði ársins.

imageHero

Símamótið var fyrst haldið árið 1985 í Kópavogi og er þetta því 42. mótið í röðinni. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna ásamt Litla Símamótinu sem haldið er fyrir 8. flokk. Keppendur eru um 3.200 talsins og því er þetta fjölmennasta knattspyrnumótið á landinu. Leikir mótsins fara fram á fótboltavöllum Breiðabliks í Kópavogi.


Líkt og margir fleiri er forstjóri Símans, María Björk Einarsdóttir, full tilhlökkunar fyrir mótinu. „Símamótið er það verkefni sem ég er ótvírætt stoltust af í samfélagsstarfi Símans. Okkar fag er að skapa verðmætar tengingar og tengingarnar verða varla verðmætari en þær sem skapast á Símamótinu. Mótið snýst hins vegar ekki um Símann. Það snýst um alla þá glæsilegu keppendur sem taka þátt, þjálfarana þeirra, aðstandendur, sjálfboðaliða og starfsfólk sem gerir helgina að veruleika.“

Nýtt sportviðmót Símans

Í nýju sportviðmóti Sjónvarpi Símans verður hægt að fylgjast með Símamótinu í beinni útsendingu. Sportviðmótið einfaldar fótboltaáhorfendum að finna fótboltaleikina og annað tengt efni á einum stað. Einnig verður hægt að fylgjast með fótboltaleikjunum á þremur línulegum rásum.


Rás 905

Heiti rásar: Símamótið 2026 - 5. flokkur

Föstudag: 8:00 – 17:00

Laugardag: 8:00 – 17:00

Sunnudag: 8:00 – 16:00


Rás 906

Heiti rásar: Símamótið 2026 – 6. flokkur

Föstudag: 8:00 – 17:00

Laugardag: 8:00 – 17:00

Sunnudag: 8:00 – 15:30


Rás 907

Heiti rásar: Símamótið 2026 - 7. flokkur

Föstudag: 9:00 – 16:30

Laugardag: 9:00 – 16:30

Sunnudag: 8:30 – 15:00

Keppendur hvaðanæva af landinu leggja allt í leikinn og eignast á sama tíma nýjar vinkonur, skapa dýrmætar minningar og snúa heim reynslunni ríkari.


Gleðilegt Símamót og áfram stelpur!