Síminn breytir nafni samstæðunnar
17. febrúar 2026
Síminn hefur ákveðið að breyta um nafn móðurfélags samstæðunnar í kjölfar breytts skipulags samstæðunnar og færslu fjarskipta- og miðlareksturs í nýtt dótturfélag.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, segir nýtt nafn vísa í stefnu um vel ígrundaðan og agaðan vöxt í fleiri áttir.
„Það er ánægjulegt að tilkynna að hið nýja móðurfélag mun bera heitið Ásar. Orðið vísar í stefnu félagsins um vel ígrundaðan og agaðan vöxt í fleiri áttir, en ávallt út frá skýrum miðpunkti sem grundvallast á traustri og öruggri stafrænni þjónustu við fólk og fyrirtæki,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, í afkomutilkynningu.
Í fjárfestakynningu Símans segir að nýtt vörumerki fyrir samstæðuna sé innblásið af áttavita „þar sem ásar teygja anga sína í ólíkar áttir, en ávallt frá skýrum miðpunkti sem grundvallast á traustri og öruggri stafrænni þjónustu við fólk og fyrirtæki“.
Síminn tilkynnti um ofangreinda breytingu á skipulagi samstæðunnar í október síðastliðnum.

Á fjórða ársfjórðungi 2025 tilkynnti Síminn um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, Opnum Kerfum og Öryggismiðstöð Íslands, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
„Fyrirtækin eiga öll langa sögu, byggja á stafrænum grunni og hafa áunnið sér mikið traust hvert á sínu sviði. Markmiðið er að ná umtalsverðri samlegð, hámarka árangur hvers félags og greiða leið frekari vaxtar,“ segir María Björk.
„Þessar breytingar eru fyrirhugaðar á tímamótaári, en Síminn fagnar 120 ára afmæli í haust. Afmælisárið verður þó fyrst og fremst nýtt til að minna á þann grunn sem ekki breytist, áratuga sögu af uppbyggingu og rekstri fjarskiptainnviða á Íslandi, sem einkennist af frumkvöðlastarfi, trausti og öryggi í rekstri. Þau gildi hafa sjaldan skipt meira máli en nú á tímum væringa í alþjóðamálum og aukinnar öryggisvitundar. Sérstaða Símans í 120 ára sögu fjarskiptareksturs á öruggum vestrænum innviðum er því ómetanleg.“