Stærsta hjólreiðakeppni landsins, Síminn Cyclothon snýr aftur á þessu ári ef aðstæður í samfélaginu leyfa. Þann 22. – 25. júní mun fjöldi hjólreiðamanna og kvenna bruna af stað í einstaklings- og liðakeppni og upplifa stórbrotna náttúru Íslands og veðurfar að nóttu sem og degi. Síminn Cyclothon er þó ekki aðeins keppni heldur safna þátttakendur áheitum sem renna óskipt til góðs málefnis, en í ár mun Landvernd njóta áheitasöfnunarinnar.
Nýjung í ár er að hámarki átta geta verið saman í liði. Keppt verður í kvenna, karla og blönduðum flokki en þar þarf kynjaskipting að vera jöfn.
„Við treystum að aðstæður leyfi okkur að bruna af stað í sumar. Það er okkur mikilvægt að geta haldið þessari frábæru keppni starfandi, íþróttinni til framdráttar og samfélaginu til góða.“ segir Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri hjá Símanum og annar stofnenda keppninnar ásamt Skúla Mogensen.
Skráning er hafin á siminncyclothon.is og þar má finna allar upplýsingar um keppnina í ár. Það er einskær von skipuleggjanda að Síminn Cyclothon geti farið fram í sumar og þannig fært hjólreiðafólki landsins eitthvað til að hlakka til ásamt því að leggja Landvernd liðsinni með áheitasöfnun svo þau geti haldið áfram sínu góða starfi.