Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að létta undir á þessum óvissutímum og því ætlum við að veita viðskiptavinum ótakmarkað gagnamagn á meðan á samkomubanni stendur. Þetta þýðir að ekki verður gjaldfært fyrir notkun umfram innifalið gagnamagn innanlands og á við um internettengingar heimila, farsímaáskriftir, Krakkakort og Þrennu.
Það er fordæmalaust ástand í þjóðfélaginu og í heiminum öllum. Fjarskipti eru nauðsynleg í slíku ástandi, þau stytta vegalengdir og hjálpa okkur að halda uppi samskiptum okkar á milli. Við hjá Símanum viljum að viðskiptavinir okkar hugsi frekar um eigin hag og heilsu, ættingja sína og vini frekar en innifalið gagnamagn og reikninga.
Athugið að endalaust gagnamagn á ekki við um Roam like home eða annað reiki erlendis, aðeins er um notkun á Íslandi að ræða.
Að lokum viljum benda á að best er að nýta netspjall á siminn.is eða sjálfsafgreiðslu í gegnum Símaappið og Þjónustuvef þar sem lágmarksmönnun er í verslunum okkar þessa stundina.