Síminn og Drift EA í samstarf

30. apríl 2026

Drift EA og Síminn hafa gert með sér samstarfssamning þar sem Síminn gerist bakhjarl Driftar EA.

imageHero

Drift EA og Síminn hafa gert með sér samstarfssamning þar sem Síminn gerist bakhjarl Driftar EA. Með samstarfinu munu fyrirtækin efla nýsköpun, styrkja tengsl atvinnulífs og skapa vettvang fyrir frumkvöðla og fyrirtæki til vaxtar og þróunar.

Sem bakhjarl mun Síminn styðja við starfsemi Driftar EA og taka þátt í að byggja upp nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi.

Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning við viðburði, fræðslu og tengslamyndun sem stuðlar að aukinni verðmætasköpun og samkeppnishæfni svæðisins.


„Það skiptir miklu máli fyrir okkur að hafa öfluga bakhjarla sem deila okkar sýn um að efla nýsköpun og skapa aðstæður þar sem hugmyndir geta orðið að veruleika. Stuðningur Símans styrkir starfsemi Driftar EA og gerir okkur kleift að halda áfram að þróa öflugt samfélag frumkvöðla og fyrirtækja á Norðurlandi,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA.


Síminn segist sömuleiðis vilja leggja áherslu á að styðja við framþróun samfélagsins og efla stafræna þróun og nýsköpun.

„Okkur er mikilvægt að byggja upp og styrkja margvísleg tengsl sem stuðla að þróun snjallra lausna sem einfalda og auðga lífið. Drift EA hefur á skömmum tíma orðið mikilvægur vettvangur fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi, og við erum stolt af því að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem þar fer fram,“ segir Sæunn Björk Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans.