Síminn er nú aðili að Jafnréttisvog FKA, hreyfiaflsverkefni sem hefur þann tilgang að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar í íslensku viðskiptalífi, virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir, taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til umhugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis.
Þrátt fyrir lög um jafnan rétt karla og kvenna og lög um kynjakvóta í stjórnum hefur staða kvenna lítið breyst. Ísland er vissulega efst á lista yfir stöðu kynjajafnréttis í heiminum og margt frábært hefur áunnist í þessum mikilvæga málaflokki en jafnrétti kemur ekki að sjálfu sér, jafnrétti er ákvörðun.
Það er því ekki tími til að slaka á og margar mikilvægar vörður framundan og munum við hjá Símanum leggja okkar af mörkum en jafnrétti kynjanna er eitt af þremur heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem að Síminn hefur sett í forgrunn. Síminn var fyrsta fjarskiptafyrirtækið á Íslandi sem að hlaut jafnlaunavottun og við vinnum með háskólasamfélaginu með markvissum hætti að aukinni þátttöku kvenna í tæknitengdu námi ásamt því að vera í samstarfi við nokkur félagasamtök sem tengjast málefninu.