Síminn er stoltur styrktaraðili átaksverkefnis um að auka nýliðun kvenna í upplýsingatækni sem Vertonet, samtök kvenna í upplýsingatækni standa fyrir. Markmiðið er að stuðla að fjölbreyttri ímynd upplýsingatækninnar og taka þátt í að breyta staðalímynd tæknistarfa. Í dag skrifaði Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Símanum undir samstarf við Vertonet en það er liður í vegferð Símans í að stuðla að fjölbreyttari vinnumarkaði og auka nýliðun kvenna í upplýsingatækni. „Við erum stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga samfélagslega verkefni ásamt öðrum styrktaraðilum sem við trúum að muni skapa mikið virði fyrir íslenskt samfélag til framtíðar.“ segir Erla.
Þáttaka í þessu mikilvæga átaksverkefni fellur vel að sjálfbærnistefnu Símans sem og þeim heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem að Síminn hefur sett í forgrunn. Síminn er með fleiri verkefni tengd jafnrétti og fjölgun kvenna í tæknistörfum í gangi en þar má t.d. nefna samstarf við Stelpur í tækni, aðild að Jafnréttisvog FKA ásamt því að Síminn greiðir skólagjöld allt að fimm kvenna sem stunda nám í tæknigreinum í Háskólanum í Reykjavík.