Síminn öryggissamstarfsaðili ársins hjá Fortinet

06. febrúar 2026

Síminn hefur verið valinn öryggissamstarfsaðili (MSSP) ársins hjá Fortinet. Viðurkenningin er veitt þeim samstarfsaðila sem hefur skarað fram úr í þjónustu, öryggi og nýsköpun á sviðinu ár hvert.

imageHero

Síminn hefur verið valinn öryggissamstarfsaðili (MSSP) ársins hjá Fortinet. MSSP (Managed Security Service Provider) viðurkenningin er veitt þeim samstarfsaðila sem hefur skarað fram úr í þjónustu, öryggi og nýsköpun á sviðinu ár hvert.

Síminn hefur lagt mikla áherslu á að veita vandaða þjónustu á þessu sviði síðustu misseri og notkun þjónustu Fortinet samhliða vaxið stöðugt. Mikilvægi vandaðra netöryggislausna verður enda sífellt meira samhliða aukinni meðvitund á því sviði.

Viðurkenningin endurspeglar skýra áherslu Símans á traust og öryggi í breiðara samhengi. Síminn fagnar 120 ára afmæli í ár og hefur um áratugaskeið boðið vandaða þjónustu á öruggum vestrænum fjarskiptakerfum. Viðurkenningin er hvatning til að gera enn meira á þessu sviði,“ segir Sæunn Björk Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans.

Fortinet er brautryðjandi alþjóðlegur aðili á sviði netöryggis, sem býður hug- og vélbúnaðarlausnir til að verja gögn og búnað fyrir árásum. Meðal vara Fortinet eru eldveggir, aðgangsstýringar og auðkenningarlausnir, svo fátt eitt sé nefnt.

Við þökkum Fortinet fyrir traustið og gott samstarf í gegnum árin, en fyrst og fremst framúrskarandi starfsfólki Símans fyrir framlag sitt og fagmennsku,“ segir Sæunn.