Sjónvarpið á ferðinni í sumar
20. maí 2026
Allt sem þú þarft á einum stað í Sjónvarpi Símans í sumar!

Dönsku trúðarnir eru væntanlegir í Sjónvarp Símans Premium í sumar!

Edduverðlauna sjónvarpsefni
Sjónvarp Símans Premium er sú streymisveita sem hýsir mest af því efni sem hlaut tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár. Meðal þeirra verka sem hlutu tilnefningar og eru aðgengileg á Sjónvarpi Símans Premium eru þáttaraðirnar Heimaey, Reykjavík 11, Reykjavík Fusion og King and Conqueror. Tilnefningar þessara þátta undirstrika sterka stöðu Sjónvarps Símans Premium sem heimili fyrir metnaðarfullt og vandað sjónvarpsefni.

Stútfullt sumar af afþreyingu
Sumarið verður á fleygiferð í Sjónvarpi Símans Premium. Nýjar þáttaraðir í hverjum mánuði en sumarið hefst með pompi og prakt þegar eyjaskeggjarnir snúa aftur í þrettánda skiptið í Love Island UK, Etta Tiger ætlar að hefna fjölskyldunnar sinnar í spennuþáttaröðinni M.I.A og Yellowstone-ævintýrið heldur áfram í Dutton Ranch. Síðast en ekki síst eru allar þáttaraðirnar af Klovn væntanlegar í Sjónvarp Símans Premium seinna í sumar!

HBO Max og Hayu
Ef það var ekki nóg þá fylgir áskrift að HBO Max og Hayu með Sjónvarpi Símans Premium. HBO Max appið er stútfullt af mest verðlaunaða efni í sögu sjónvarps og Hayu sér til þess að þig skorti ekki þinn skammt af dramatík og slúðri úr heimi raunveruleikasjónvarpsins.

Ekki missa af boltanum í sumar
Með nýju og uppfærðu appi Sjónvarps Símans getur þú fylgst með öllum leikjunum á heimsmeistaramótinu í fótbolta hvar sem þú ert á landinu. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja appið, stofna aðgang og byrja að horfa.