Fjölmennt á markaðsviðburðinum Skilaboð 2026
12. febrúar 2026
Yfir 400 manns voru saman á Skilaboð 2026, einum stærsta markaðsviðburði landsins en yfir 400 manns mættu í Silfurbergi í Hörpu.

Viðburðurinn er haldinn af Auglýsingamiðlun Símans og Billboard, en meðal gesta voru helsta markaðsfólk og starfsfólk auglýsingastofa ásamt fulltrúum úr tengdum greinum til að hlýða á erindi um þróun, áskoranir og framtíð markaðsmála.
Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá þar sem m.a. var fjallað um stöðu og þróun miðla, mælingar, innihald og alþjóðlega strauma í geiranum.
Vésteinn Gauti Hauksson, frumkvöðull, reið á vaðið með erindinu „Er skilti bara skilti?“ þar sem hann fjallaði um staðlaðar mælingar á umhverfismiðlum og mikilvægi gagnadrifinnar nálgunar í síbreytilegu miðlaumhverfi. Hann lagði áherslu á að sameiginleg viðmið og áreiðanleg gögn væru lykillinn að trausti og árangri í birtingum utan heimilis.

Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, flutti erindið „Efni sem enginn sér hefur engin áhrif“. Þar sem áherslan var á hvernig endurskipulagning á ráðstöfun fjármagns hefði aukið sýnileika Símans og skilað sér í meiri auglýsingaeftirtekt og auknum tekjum.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, steig næst á svið með erindinu „Nýtt útlit, sama innihald“. Í erindi sínu fjallaði hún um hvernig Þjóðkirkjan endurnýjaði útlit sitt og ímynd og hvernig hún byggði þá vinnu á kjarnagildum kirkjunnar.
Alþjóðlegt sjónarhorn kom frá Dino Burbidge, Chief Innovation Officer, sem flutti fyrirlesturinn „The Now, Next and Future Media Trends“. Þar var sjónum beint að nýjustu straumum og hvers má vænta í miðlun og tækni, áhrifum nýsköpunar og því hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig fyrir næstu bylgju breytinga í alþjóðlegu miðlalandslagi.

Saga Garðarsdóttir stýrði dagskránni með uppistandsinnslagi og beittum húmor og náði salnum strax á sitt band og hláturinn var aldrei langt undan.

Skilaboð 2026 staðfesti enn á ný mikilvægi samræðu og samveru innan markaðsgeirans, þar sem fagfólk kemur saman, deilir reynslu og horfir til framtíðar í síbreytilegu umhverfi samskipta og miðlunar.








