Þann 1. desember 2020 mun Síminn breyta skilmálum fyrir internet þjónustu.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 800 7000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800 4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
INTERNET
Orðalag í grein 8.2 í skilmálum Internetþjónustu tekur breytingum.
Fyrir breytingar er hún eftirfarandi : Við uppsögn ber viðskiptavin að skila endabúnaði. Ef búnaði er ekki skilað verður áfram gjaldfært fyrir mánaðarlegt leigugjald samkvæmt gildandi verðskrá, þar til honum hefur verið skilað. Sé þjónustu sagt upp um mánaðarmót hefur viðskiptavinur þó fimm virka daga til þess að skila búnaði til Símans.
Eftir breytingu verður grein 8.2 sem hér segir :
Við uppsögn ber viðskiptavin að skila endabúnaði. Ef búnaði er ekki skilað verður áfram gjaldfært fyrir mánaðarlegt leigugjald samkvæmt gildandi verðskrá, þar til honum hefur verið skilað.
Nánara yfirlit yfir þær skilmálabreytingar sem taka gildi þann 1. desember 2020 má sjá hér.