Þann 1. mars 2021 mun Síminn breyta skilmálum fyrir farsímaþjónustuna Frelsi.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 800 7000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800 4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected].
FRELSI
Kafli 8 í skilmálum fyrir farsímaþjónustuna Frelsi tekur breytingum.
Skilmálabreytingin tekur fyrir skilmála vegna bættrar þjónustu í Frelsi en nú geta viðskiptavinir Símans með farsímaþjónustu í Frelsi (fyrirframgreidd farsímaþjónusta) notað inneign sína erlendis í löndum innan EES. Reglur um sanngjarna notkun gagnamagns í EES gilda eins og áður.
Skilmálabreytinguna í heild sinni má lesa hér. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér hana.