Slagsmál á hliðarlínunni vöktu verðskuldaða athygli

05. júní 2025

Myndband af hópi mæðra í handalögmálum á hliðarlínu fótboltavallarins fór sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum í síðustu viku.

imageHero

Myndband af hópi mæðra í handalögmálum á hliðarlínu fótboltavallarins fór sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Þar sjást ungir iðkendur fylgjast með grófum átökum og öskrum foreldra sinna á vellinum.

Á daginn kom þó að ekki var um raunveruleg slagsmál að ræða heldur atriði úr tökum á þáttunum Boltamömmur, sem nú eru í framleiðslu fyrir Sjónvarp Símans Premium. Ekki var um skipulagða markaðsherferð að ræða, heldur myndbrot sem fór fyrir slysni í umferð á samfélagsmiðlum.

Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, sem fékk hugmyndina í miklum hasar á hliðarlínunni, sem náði þó sjaldan þeim hæðum sem sáust í tökunum.

Boltamömmur eru framleiddir af Atlavík, framleiðsluteyminu að baki Iceguys, og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka og lendir á skrautlegu sviði foreldrasamskipta, keppnisskaps og tilfinninga. Leikstjórar þáttaraðarinnar eru Hannes Þór Halldórsson og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Þættirnir verða frumsýndir í Sjónvarpi Símans Premium semma á árinu 2026.