Sögulegt samstarf Símans og HBO
04. júlí 2025
Síminn verður samstarfsaðili Warner Bros. Discovery á Íslandi samkvæmt nýjum samningi sem undirritaður var fimmtudaginn 3. júlí. Viðskiptavinir Símans fá aðgang að völdu efni HBO í Sjónvarpi Símans Premium auk fulls aðgangs að appi HBO Max.

HBO Max er leiðandi alþjóðleg streymisveita Warner Bros. Discovery sem inniheldur kvikmyndir og sjónvarpsþætti frá HBO, Warner Bros. Pictures, Max Originals, Discovery o.fl.
Meðal titla í safninu eru sjónvarpsþættir á borð við The Last of Us, Game of Thrones, House of the Dragon, Succession, The White Lotus, Entourage, Friends og Sex and the City. Auk þess má nefna fjölda kvikmynda, þ.á.m. Harry Potter safnið auk Lord of the Rings og The Dark Knight þríleikjanna.
Um er að ræða einn stærsta efniskaupasamning Símans til þessa. „Þetta er sögulegur samningur og einstaklega ánægjulegt að Warner Bros. Discovery kjósi að vinna með Símanum hér á landi, en við byggjum á traustum grunni samstarfs undanfarinna ára,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans.
„Það er markmið Símans að vera í fremstu röð þegar kemur að gæðum í öllu sínu efni. Við búum þegar að einhverju besta framboði landsins bæði af vönduðu, leiknu, íslensku efni og erlendu gæðaefni og nú bætist enn í safnið,“ segir María Björk.
„Samstarfið er í samræmi við alþjóðlega þróun þar sem fjarskiptafyrirtæki og streymisveitur sameina krafta sína í auknum mæli til að skapa meira virði fyrir viðskiptavini, sem vilja fyrst og fremst þægindi og aðgengi að öllu sínu efni á einum stað.“
„Innreið HBO Max á Íslandi er mikilvægur áfangi fyrir okkur á Norðurlöndum. Hún endurspeglar metnað okkar til að gera afþreyingu á heimsmælikvarða aðgengilega sífellt fleirum. Við erum sérstaklega ánægð að vinna með öflugum samstarfsaðila eins og Símanum, sem deilir áherslu okkar á vandað gæðaefni. Íslenskir áhorfendur geta hlakkað til að njóta hágæða streymisþjónustu sem sameinar efni frá HBO, Warner Bros. Pictures, Discovery, Eurosport og fleirum,“ segir Christina Sulebakk, framkvæmdastjóri Warner Bros. Discovery á Norðurlöndum.
Samstarfið verður nánar kynnt fyrir viðskiptavinum á komandi vikum.