„Sögur sem breyta heiminum eru viðtalsþættir, einskonar potrait af sex einstaklingum, sem segja frá því hvernig ein ákvörðun eða hugmynd breytti lífi þeirra“ segir Þorsteinn.
Viðmælendur eru þrjár konur, þrír karlar, og sögur þeirra eru mjög ólíkar. Ég spyr þessar einföldu spurningar strax í byrjun: Hvað var það sem gerðist? Síðan hefst hröð atburðarás þar sem við kynntumst þessum áhugaverðu viðmælendum og sögu þeirra, í gegnum viðtöl, lifandi myndir og ljósmyndir. Í lokin er svo komin heildstæð mynd af fólkinu og því sem gerðist. Það hefur allt breyst, og ef manni tekst að breyta sinni eigin sögu, þá má hæglega ganga svo langt að segja að manni hafi um leið tekst að breyta heiminum.“