Tækninámskeið fyrir eldri borgara hjá Símanum

15. maí 2026

Á þriðjudaginn, 12. maí, var haldið skemmtilegt og fræðandi tækninámskeið fyrir eldri borgara í höfuðstöðvum Símans. Mikil aðsókn var á námskeiðið og líflegar umræður sköpuðust.

imageHero

Síminn hélt fyrr í vikunni tækninámskeið fyrir eldri borgara í samstarfi við Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB). Námskeiðið fór fram í kennslustofu í höfuðstöðvum Símans og sóttu margir áhugasamir gestir viðburðinn.

Markmið námskeiðsins var að efla tæknifærni eldri borgara og auka öryggi þeirra og sjálfstæði í hinum stafræna heimi. Farið var yfir ýmis hagnýt atriði sem nýtast í daglegu lífi, meðal annars notkun Google, samfélagsmiðla, myndavéla í snjallsímum og Google Maps. Þá var einnig fjallað um rafræn skilríki, öryggismál, stillingar á íslensku lyklaborði og notkun síma erlendis.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, tók á móti fundargestum og fagnaði þeim mikla áhuga sem eldri borgarar sýna tækninni. „Við hjá Símanum leggjum áherslu á að tæknin sé aðgengileg öllum og við erum stolt af því að geta miðlað þekkingu og aukið öryggi og sjálfstraust einstaklinga í stafrænum heimi,“ segir María.

Eva Karen Þórðardóttir, fræðslustjóri Símans, sá um fræðsluna og fór yfir fjölbreytt tæknitengd atriði á aðgengilegan og hagnýtan hátt. Líflegar umræður sköpuðust á námskeiðinu og fjölmörgum spurningum var svarað.

Síminn fagnar góðri þátttöku á námskeiðinu og ljóst er að áhugi á tækni og aðgengi að tæknilausnum fyrir alla aldurshópa skiptir miklu máli.