Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.

Nafn

Kennitala

Símanúmer

Netfang

Heimilisfang

Skilaboð

Texti undir formi
Texti2 undir formi
Texti falinn
Ertu hjá Símanum?
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
0
kr./ mán.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2021-07-07

Það styttist í Símamótið

Stærsta knattspyrnumót landsins, Símamótið fer fram 8. – 11. júlí á hinu frábæra félagssvæði Breiðabliks í Kópavogi.

Þetta er 37. mótið í röðinni þar sem 5.-7. flokkur kvenna mætir til að sýna hæfileika sína og gleðjast saman utan sem innan vallar. Í ár bjóðum við einnig 8. flokk velkomnar á ‚Litla Símamótið‘ þar sem þær fá að stíga sín fyrstu skref. Kópavogsdalurinn og nærliggjandi svæði verða því full af hressum stelpum og fjölskyldum þeirra sem munu vonandi skemmta sér sem best yfir þeirri upplifun sem Símamótið er.

Símamótið er nú stærra en nokkru sinni fyrr en yfir 3.000 fótboltastelpur hafa skráð sig til leiks og munu þær spila yfir 1.600 leiki áhorfendum til skemmtunar. Um 150 leikir verða sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport stöðvunum og þannig geta aðdáendur heima í stofu tekið þátt í gleðinni. Að móti loknu verða leikirnir aðgengilegir í sjónvarpsþjónustu Símans.

Sýnt verður frá eftirfarandi völlum:

5. flokkur á velli 38
6. flokkur á velli 22
7. flokkur á velli 1

Útsendingar hefjast kl. 8:00 föstudag til sunnudags og verða á Síminn Sport 1, Síminn Sport 2 og Síminn Sport 3 stöðvunum. Við hvetjum alla sem ekki eiga heimangengt á völlinn að fylgjast með sínum stelpum í opinni dagskrá.

Breiðablik sem skipuleggur mótið á þakkir skyldar fyrir frábært utanumhald og sérstakar þakkir fær sá mikli fjöldi sjálfboðaliða sem gerir mót sem þetta mögulegt. Við erum stolt af því að koma að þessu flotta móti.

Áfram stelpur!

Það styttist í SímamótiðÞað styttist í Símamótið

Grein1 myind
"
Grein2 mynd
No items found.
Grein3 Mynd
Grein4 Mynd
No items found.
Komdu til Símans