Þjónustubreytingar hjá Símanum þann 1. júlí 2021.
Reykjavík 1. júní 2021
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800 4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
ÞÆTTIR Í SÍMANN
Þann 1. júlí 2021 mun þjónustan „Þættir í símann“ hætta. Þættir í símann er gjaldfrjáls þjónusta sem gerir farsímanotendum með virka farsímaáskrift kleift að horfa á valið efni úr heimi Sjónvarps Símans Premium í Sjónvarps Símans appinu. Þjónustan mun hætta þann 1. júlí 2021 og verða óvirk.