Þáttaröðin Hildur ein sú vinsælasta

18. mars 2026

Íslenska þáttaröðin Hildur fór af stað með krafti í Sjónvarpi Símans Premium og er þegar orðin ein sú vinsælasta í sögu miðilsins.

imageHero

Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Hildur, í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur, fór af stað með krafti í Sjónvarpi Símans Premium. Þáttaröðin náði einni stærstu opnun sem íslensk þáttaröð hefur fengið frá upphafi í miðlinum og sýnir skýrt þann mikla áhuga sem ríkir á vönduðu íslensku sjónvarpsefni.

Áhorf langt fram úr væntingum

Viðtökurnar hafa verið afar öflugar frá frumsýningu 29. janúar og áhorfstölur setja Hildi í hóp allra stærstu frumsýninga íslensks efnis í Sjónvarpi Símans Premium. Áhorf hefur farið fram úr væntingum og er þáttaröðin þegar orðin ein sú vinsælasta í sögu Sjónvarp Símans Premium.


„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu sterkt Hildur byrjar. Þessar viðtökur staðfesta bæði gæði þáttanna og þann kraft sem býr í íslenskri þáttagerð,“ segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum.

Fangar athygli áhorfenda strax

Hildur hefur fengið frábær viðbrögð áhorfenda og umræðu á samfélagsmiðlum, þar sem spennandi framvinda og sterkir karakterar hafa vakið sérstaka athygli. Ljóst er að þáttaröðin hefur náð að fanga athygli þjóðarinnar strax frá fyrsta þætti en frá upphafi sýninga hafa um 180.000 manns horft á þáttaröðina.

„Gífurlegar vinsældir hinna frábæru bóka Satu Rämö gáfu til kynna að eftirvæntingin fyrir seríunni yrði mikil. Viðtökurnar hafa þó farið fram úr okkar björtustu vonum og staðfesta enn og aftur mikinn áhuga á vönduðum íslenskum leiknum þáttaröðum,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, forstjóri Sagafilm.

Íslenskt efni í miklum vexti

Sjónvarp Símans hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á metnaðarfullt íslenskt efni og árangur Hildar þykir undirstrika þann árangur sem náðst hefur í uppbyggingu á innlendri dagskrárgerð. Árangurinn endurspeglar jafnframt vinsældir Sjónvarps Símans Premium og þann sterka áhuga sem áhorfendur hafa á íslenskri kvikmyndagerð.

Um þáttaröðina Hildur

Hildur, sem er í sex hlutum, er framleidd af Sagafilm og Take Two Studios fyrir streymisveituna Ruutu í Finnlandi og Sjónvarp Símans. Þáttaröðin er byggð á samnefndri metsölubók finnska rithöfundarins Satu Rämö. Handritið skrifuðu þau Matti Laine og Margrét Örnólfsdóttir.

Sagan fylgir rannsóknarlögreglukonunni Hildi Rúnarsdóttur (Ebba Katrín Finnsdóttir), sem á að baki langa sorgarsögu, en báðar systur hennar hurfu sporlaust fyrir rúmum 20 árum og ári síðar missti hún báða foreldra sína í bílslysi. Hildi er nú falið að rannsaka morðið á barnaníðingnum Jóni Jónssyni (Þór Tulinius) en henni til aðstoðar eru tveir metnaðarfullir menn í þjálfun á lögreglustöðinni á Ísafirði; Finninn Jakob (Lauri Tilkanen) og Þjóðverjinn Florian (Rick Okon).

Meira í Sjónvarpi Símans Premium.