Tilbaka
Tilbaka
Til baka
Senda fyrirspurn

Veldu erindi

Fylltu út eitt af neðantöldu!

Takk fyrir!

Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.
Texti undir formi1
Texti undir formi2
Viðhengi texti
Hleð inn skrá...
fileuploaded.jpg
Upload failed. Max size for files is 10 MB.
Texti falinn
0
Ertu hjá Símanum?
Verð samtals:
22.000
kr./ mán.
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Til baka
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2023-07-01
Þjónustu- og verðbreytingar 1. ágúst 2023

Þjónustu- og verðbreytingar 1. ágúst 2023

Reykjavík 1. júlí 2023

Þann 1. ágúst 2023 mun Síminn gera þjónustu- og verðbreytingar á nokkrum vörum.

Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustu sinni án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.

Þjónustu- og verðbreytingar 1. ágúst 2023

Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja verslanir Símans.

Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.

Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.

Talsími (VoIP)
Heimasími (yfir VoIP) mun hætta. Viðskiptavinir færast í Heimasími Endalaus  (yfir VoIP).

Sjá nánar í verðskrá hér.

Farsími
Mínútuáskrift 10 MB mun hætta og munu viðskiptavinir færast í Áskrift 1 GB.
Áskrift 10 GB breytist í Áskrift 15 GB ásamt því að Áskrift 30 GB hættir. Viðskiptavinir í þeirri áskrift færast í 50 GB sem á móti lækkar í niður í 5.100 kr.
Áskrift 100 GB hættir en viðskiptavinir í þeirri leið færast í Áskrift 250 GB sem hækkar um 600 kr.
Öll gagnakort sem áður fylgdu ákveðnum áskriftarleiðum munu nú kosta 800 kr. og ekki vera lengur innifalin.

Heimilispakkar
Þægilegi pakkinn ásamt heimilispakkanum hækka báðir um 500 kr.
Einfaldi pakkinn hækkar um 100 kr. og mun eftir breytinguna kosta 13.000 kr.

Sjónvarp
Pakkar með erlendum rásum hækka samhliða þessum breytingum. Þannig mun Heimur - Grunnur hækka um 200 kr., Evrópa um 610 kr. og Allt um 210 kr.
Áskriftarleiðirnar Sjónvarp Símans Premium ásamt Síminn Sport munu báðar hækka um 500 kr.
Aðrar breytingar má nálgast í skjalinu hér að neðan undir liðnum Sjónvarp.

Internet
Áskriftirnar Netið 500 GB og Internetleið 500 GB hætta og munu viðskiptavinir í þeim leiðum færast í Internetleið Endalaust sem inniheldur endalaust gagnamagn.
Viðbótin Stækkun í Endalaust gagnamagn mun hætta ásamt því að leigugjald beinis mun hækka um 50 kr.
Aðrar breytingar má nálgast í skjalinu hér að neðan undir liðnum Internet.

Yfirlit yfir allar þjónustu- og verðbreytingar sem munu taka gildi þann 1. ágúst, má nálgast hér að neðan.

Grein1 myind
Yfirlit yfir þjónustu- og verðbreytingar 1. ágúst 2023
Grein2 mynd
Grein2 mynd
Grein2 mynd
Komdu til Símans