Gagnanotkun í farsíma hefur haldið áfram að aukast þrátt fyrir fækkun ferðamanna og því er mikið kapp lagt á að bregðast hratt við flöskuhálsum og þannig uppfæra senda og stækka flutningsleiðir að sendum í takti við aukna notkun. Við munum halda svipuðum dampi út árið og þannig treysta enn betur í sessi dreifikerfi okkar sem þjónustar íbúa og fyrirtæki um allt land.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að fjölga sendistöðum sem notfæra sér 700Mhz tíðnisviðið sem Síminn hefur eitt fjarskiptafyrirtækja á Íslandi leyfi fyrir. 700Mhz tíðnisviðið gefur okkur enn meiri útbreiðslu frá hverjum og einum sendistað og hún er því þannig langdrægasta 4G tíðni landsins.
Fyrir rúmi ári gangsettum við hjá Símanum fyrstu NB-IoT og LTE-M sendana okkar sem nýtast í IoT (Internet of Things). Prófanir hafa staðið yfir með nokkrum viðskiptavinum Símans sem sýnt hafa þessari nýju tækni mikinn áhuga. Tæknin nýtist sérstaklega fyrir tækni sem er ekki bandvíddarfrek en þarfnast öruggar sítenginga eins og snjallmæla, skynjara, jarðskjálftamæla, myndavélar osfrv.
Í vor fékk Síminn úthlutað 5G tíðnileyfi. Miðlægum uppfærslum vegna 5G verður lokið í sumar en mikið af okkar búnaði var fyrir tilbúin fyrir 5G en fyrstu sendarnir fara upp í haust. Þó að 5G færi okkur enn meiri hraða og lægri svartíma en fyrri kynslóðir sem opnar nýja möguleika verður 5G enn meira langhlaup en áður þar sem alvöru 5G kerfi kalla á flóknari og þéttari sendanet. En við erum tilbúin í slaginn og munum aftur sem áður vera í fararbroddi þegar kemur að traustum og öruggum samskiptum sem ná sem víðast.
Skoðaðu gagnvirkt kort hérna.