Tímabundin lokun verslunar í Ármúla

30. september 2026

Verslun Símans í Ármúla er lokuð í október vegna framkvæmda.

imageHero

Í októbermánuði er verslun Símans í Ármúla lokuð vegna framkvæmda. Við ætlum að stækka verslunina, bæta aðstöðuna og gera upplifun viðskiptavina enn betri.


Framkvæmdir standa yfir í allan október og verða bæði verslun og móttaka lokuð á meðan á þeim stendur. Endurbætt verslun Símans í Ármúla opnar aftur 2. nóvember.


Netspjall Símans er opið og síminn okkar er 550 6000.

Á meðan á lokuninni stendur bendum við viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu á verslun Símans í Smáralind.


Opnunartími í Smáralind

Mánudagar–föstudagar: kl. 9:00–19:00
Laugardagar: kl. 11:00–18:00
Sunnudagar: kl. 12:00–17:00


Verslun Símans á Akureyri verður opin samkvæmt hefðbundnum opnunartíma.


Síminn Pay og Noona í Katrínartúni

Síminn Pay og Noona hafa flutt höfuðstöðvar sínar í Katrínartún 4, 105 Reykjavík. Vel verður tekið á móti þeim sem eiga erindi við fyrirtækin þar. Opið er frá kl. 10–15.


Afhending pantana

Á meðan verslunin í Ármúla er lokuð verða pantanir á höfuðborgarsvæðinu afhentar í verslun Símans í Smáralind. Einnig verður boðið upp á fría heimsendingu á öllum vörum í október.


Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í endurbættri verslun í Ármúla í nóvember.