Töfrarnir byrja löngu fyrir jól í Sjónvarpi Símans Premium
08. nóvember 2026
Jólin nálgast og í Sjónvarpi Símans Premium er nóg af góðu efni til að stytta biðina. Jólamyndir, vinsælir sjónvarpsþættir og ævintýri fyrir alla fjölskylduna sjá til þess að allir finni eitthvað við sitt hæfi í desember.

Það er eitthvað sérstakt við desember. Jólaljósin kvikna, tilhlökkunin eykst og notalegar stundir í sófanum verða enn betri. Í Sjónvarpi Símans Premium verður sannkölluð kvikmynda- og sjónvarpsveisla yfir hátíðarnar.
Jólamyndir fyrir öll tilefni
Hvort sem þú vilt kitla hláturtaugarnar, upplifa rómantíkina beint í æð eða einfaldlega koma þér í jólaskap er úr nógu að velja.
Á meðal jólamyndanna í ár eru Surviving Christmas, Scrooged, This Is Christmas, Office Christmas Party, Bad Santa og A Bad Moms Christmas. Þá verða einnig í boði um 25 Hallmark myndir fyrir þau sem vilja láta jólarómantíkina taka öll völd.
Töfrar og ævintýri fyrir alla fjölskylduna
Yngstu áhorfendurnir fá líka nóg að gera í jólafríinu. Hvolpasveitin, Paddington, Sonic og Svampur Sveinsson mæta til leiks með fjör, húmor og skemmtileg ævintýri.
Hvað væri desember án smá töfra? Harry Potter myndirnar verða í boði á HBO Max og býður upp á fullkomið tilefni til að heimsækja Hogwarts á nýjan leik.
Stórmyndir og uppáhaldsþættir
Það er ekki allt jólaefni sem kemur okkur í jólaskap. Fyrir þau sem vilja taka sér frí frá jólaundirbúningnum verða einnig í boði stórmyndir á borð við Dune: Part Two, Bad Santa og La La Land.
Þá má alltaf treysta á gömlu góðu vinina í Friends og félagana í The Big Bang Theory þegar kemur að því að slaka á og hlæja aðeins meira.
Komdu þér vel fyrir, við sjáum um jólastemninguna. Það þarf ekki að bíða til aðfangadags eftir góðum stundum. Kveiktu á jólaljósunum, náðu í teppi, eitthvað gott að maula og leyfðu töfrunum að taka við.
Jólin byrja í Sjónvarpi Símans Premium.