Um bráðabirgðaákvörðun Fjarskiptastofu í máli Símans og Sýnar
07. ágúst 2025
Sýn er skylt að verða við beiðni Símans um aðgang að sjónvarpsútsendingum sínum. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Fjarskiptastofu sem birt var á þriðjudag. Ákvörðunin gildir til 1. febrúar 2026, en er framlengjanleg með frekari skilyrðum til 1. september 2026. Síminn mun því dreifa opnu rásinni Sýn til viðskiptvina sinna án endurgjalds auk þess að selja og dreifa áskriftum að íþróttastöðvum Sýnar á kerfum Símans.

Sýn er skylt að verða við beiðni Símans um aðgang að sjónvarpsútsendingum sínum. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Fjarskiptastofu sem birt var á þriðjudag. Ákvörðunin gildir til 1. febrúar 2026, en er framlengjanleg með frekari skilyrðum til september 2026 náist ekki samningar fyrir þann tíma.
Síminn mun því dreifa opnu rásinni Sýn til viðskiptvina sinna án endurgjalds auk þess að selja og dreifa áskriftum að íþróttastöðvum Sýnar á kerfum Símans.
Kjarni ákvörðunar Fjarskiptastofu er að fjölmiðlaveitum sé lögum samkvæmt skylt að verða við beiðnum fjarskiptafyrirtækja um dreifingu sjónvarpsútsendinga. Stofnunin hefur hins vegar ekki heimildir til að hlutast til um dreifingu ólínulegs efnis. Sýn þarf þess vegna ekki að veita aðgang að efnisveitu sinni Sýn+ og hún verður ekki aðgengileg á kerfum Símans.
Síminn greiðir Sýn að fullu fyrir áskriftir samkvæmt gjaldi sem Fjarskiptastofa ákvað til bráðabirgða og Sýn verður því ekki fyrir neinu tjóni vegna ákvörðunarinnar. Þvert á móti má ætla að Sýn selji fleiri áskriftir vegna hennar.
Afstaða Símans
„Við tökum undir ákvörðun Fjarskiptastofu sem er bæði í samræmi við lög og kröfur áhorfenda í nútímasamfélagi, sem vilja hafa val um hvar þeir nálgast sínar útsendingar,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans.
„Því hefði fylgt mikið óhagræði fyrir neytendur ef ákvörðun Sýnar hefði gengið eftir. Í því samhengi má rifja upp að þegar Síminn hélt á sýningarrétti á enska boltanum var hann jafnframt aðgengilegur á kerfum Sýnar, enda aðgengi og virk samkeppni hagsmunamál fyrir neytendur.“
Misskilningur leiðréttur
Borið hefur á misskilningi þess efnis að ástæðan fyrir áformum Sýnar væri sú að ekki tækist að semja við Símann um miðlun efnisins. Það er rangt, hið rétta er að Síminn hefur ítrekað óskað eftir aðgangi að útsendingum Sýnar, lögum samkvæmt, sem nú hefur verið tryggður með ákvörðun Fjarskiptastofu.
Sömuleiðis hefur borið á misskilningi þess efnis að Síminn hafi áður synjað Sýn um aðgang að Sjónvarpi Símans Premium. Þetta er einnig rangt, en hið rétta er að innleiðing Premium á kerfi Sýnar var langt komin áður en Sýn sleit samningaviðræðum þess efnis í vor.
Af hverju fylgja streymisveitan Sýn+ og Viaplay Total ekki með?
Líkt og áður segir fellur ólínuleg myndmiðlun utan heimilda Fjarskiptastofu. Sú regla gildir jafnt um íslensk og erlend fyrirtæki og stofnunin getur þess vegna ekki lagt kvaðir á dreifingu efnisveitnanna Sýn+ eða ViaPlay Total.
Framhaldið
Líkt og áður segir er ákvörðun Fjarskiptastofu til bráðabirgða og gildir að óbreyttu til 1. febrúar, en er framlengjanleg með frekari skilyrðum til september 2026 náist ekki samningar fyrir þann tíma. Stofnunin mun taka endanlega ákvörðun í málinu áður en bráðabirgðaákvörðunin rennur út.
Síminn vonast þó að sjálfsögðu til að þess að málinu ljúki áður með eðlilegu samkomulagi sem tryggir aðgang sem flestra neytenda til lengri tíma.