Við vörum við vefveiðum í nafni Símans þar sem fólki berst tölvupóstur vegna ofgreiddra símareikninga og endurgreiðslu vegna þeirra. Umræddur póstur er ekki frá Símanum og tilgangur hans aðeins að stela persónu- og kreditkorta upplýsingum.
Berist slíkur tölvupóstur til þín er best að eyða honum strax og njóta dagsins. Gott er að taka fram að engin skaði er af því að opna póstinn, aðeins ef smellt hefur verið á hlekk og eyðublað fyllt út með kreditkorta upplýsingum.
Ef slíkt hefur gerst mælum við með að heyra samstundis í þínum viðskiptabanka.