Tilbaka
Tilbaka
Til baka
Senda fyrirspurn

Veldu erindi

Fylltu út eitt af neðantöldu!

Takk fyrir!

Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.
Texti undir formi1
Texti undir formi2
Viðhengi texti
Hleð inn skrá...
fileuploaded.jpg
Upload failed. Max size for files is 10 MB.
Texti falinn
0
Ertu hjá Símanum?
Verð samtals:
22.000
kr./ mán.
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Til baka
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2024-05-01
Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2024

Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2024

Reykjavík 1. maí 2024

Þann 1. júní 2024 mun Síminn gera verðbreytingar á nokkrum vörum ásamt því að uppfæra almenna viðskiptaskilmála. Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustu sinni án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.‍

Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2024

Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, senda okkur tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja verslanir Símans.

Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.

‍Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.

FARSÍMI
Áskrift 15 GB hækkar um 250 kr. og mun kosta 3.250 kr. eftir breytinguna. Áskrift - Endalaust með netinu hækkar um 50 kr. og mun einnig kosta 3.250 eftir breytinguna.

INTERNET
Endalaust Net hækkar um 200 kr. og mun kosta 8.200 kr. eftir breytinguna ásamt því að þjónustugjald netbeinis mun hækka um 100 kr. og verður því 1.300 kr.

HEIMILISPAKKAR
Heimilispakkinn hækkar um 160 kr. og mun því kosta 19.160 kr.

TALSÍMI
Verðhækkun verður á því að setja símanúmer í geymslu um 309 kr. og mun þjónustan kosta 2.500 kr.

SJÓNVARP SÍMANS
Heimur - Allt með Premium hækkar um 100 kr. og mun kosta 5.600 kr.Heimur - Grunnur með Premium mun hækka um 50 kr. og mun kosta 1.550 kr. Heimur - Evrópa með Premium mun hækka um 100 kr. og mun því kosta 4.600 kr og Sjónvarpsáskrift - myndlykill mun hækka um 50 kr. og þannig kosta 1.450 kr.

SKILMÁLAR
Síminn mun einnig uppfæra almenna viðskiptaskilmála sína. Uppfærslan felur í sér fjölbreyttari samskiptamáta við sendingu innheimtuviðvaranna.

Grein1 myind
Yfirlit yfir verð- og nafnabreytingar 1. júní 2024
Grein2 mynd
Grein2 mynd
Grein2 mynd
Komdu til Símans