Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja næstu verslun Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
FARSÍMI
Eftirfarandi breytingar á verðskrá fyrir reiki í Evrópu taka gildi 1. janúar 2023.
Verð per megabæti í reiki (e. roaming) í Evrópu lækkar um 0,26 kr. og mun því hvert megabæti í reiki í Evrópu kosta 0,33 kr. í stað 0,59 kr.
Innifalið gagnamagn í farsíma í reiki innan EES hækkar, misjafnt eftir áskriftarleiðum. Þannig hækkar innifalið gagnamagn í Áskrift 10GB um 5GB, Áskrift 30 og 50GB um 15GB og í Áskrift 100 GB um 20 GB.
Þrenna 10 GB hækkar um 200 kr. og mun kosta 2.900 kr í stað 2.700 kr og Þrenna 25GB mun einnig hækka um 200 kr. og mun kosta 3.900 kr í stað 3.700 kr. áður.
INTERNET
Innifalið gagnamagn í Internetleið 50GB tvöfaldast og verður 100GB og verð á áskriftinni hækkar um 400 kr en sama á við um áskriftarleiðina Netið 50 GB.
Internetleið 500GB og Netið 500 GB hækka um 500 kr. en stækkun í Endalaust gagnamagn lækkar um 500 kr. og mun kosta 800 kr. eftir breytinguna.
SJÓNVARP
Áskrift að Sjónvarpi Símans Premium hækkar um 600 kr og mun kosta 7.500 kr.
Síminn Sport hækkar um 1.600 kr og mun áskrift að Síminn Sport kosta 6.500 kr.
HEIMTAUG
Línugjald heimtaugar hækkar um 140 kr. og mun því kosta 3.890 kr. í stað 3.750 kr. áður.
HEIMILISPAKKINN
Heimilispakki Símans hækkar um 400 kr. og mun kosta 17.300 kr í stað 16.900 kr áður.