Tilbaka
Tilbaka
Til baka
Senda fyrirspurn

Veldu erindi

Fylltu út eitt af neðantöldu!

Takk fyrir!

Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.
Texti undir formi1
Texti undir formi2
Viðhengi texti
Hleð inn skrá...
fileuploaded.jpg
Upload failed. Max size for files is 10 MB.
Texti falinn
0
Ertu hjá Símanum?
Verð samtals:
22.000
kr./ mán.
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Til baka
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2023-05-01
Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2023

Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2023

Reykjavík 1. maí 2023

Þann 1. júní 2023 mun Síminn breyta verðum á nokkrum vörum ásamt því að nokkur lönd verða gjaldgeng í Ferðapakkann og reikiverð í öðrum löndum lækkar.

Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustu sinni án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.

Verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2023
Grein1 myind

Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja verslanir Símans.

Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.

Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.

Talsími
Heimasími – Endalaust (VOIP) mun hækka um 600 kr.

Verðbreytingar taka einnig gildi á ýmsri sérþjónustu í talsíma sem má sjá nánar hér

Farsími
Áskrift 30 GB mun hækka um 300 kr. og mun því kosta 4.200 kr.
Fjölskyldukort munu hækka um 400 kr. og munu því kosta 3000 kr. og gagnakort í farsíma sem áður voru innifalið með ákveðnum áskriftarleiðum munu nú kosta 800 kr.

Verðskrá fyrir reiki tekur breytingum en verð á reiki í fjölda landa lækkar ásamt því að Ferðapakkinn sem tryggir lægri símakostnað á ferðalögum er nú aðgengilegur í Albaníu, Argentínu, Barein, Belarús, Brasilíu, Gana, Indónesíu, Katar, Kúveit, Marokkó, Moldavíu, Nýja Sjálandi, Palestínu, Púertó Ríkó, Sádi-Arabíu, Serbíu, Singapúr, Síle og Víetnam.

Sjá má yfirlit yfir allar breytingar fyrir verðskrá farsíma hér.

Heimtaug
Línugjald heimtaugar mun hækka um 100 kr. og verður því eftir verðbreytingu 3.990 kr.

Sjá má yfirlit yfir allar breytingar fyrir verðskrá hér.

Heimilispakkinn
Heimilispakki Símans hækkar um 600 kr. og mun því kosta 17.900 kr. eftir breytingu.
Við viljum benda viðskiptavinum okkar á nýjar áskriftarleiðir, Þægilega og Einfalda pakkann sem mögulega henta einhverjum betur. Í dag þann 1. maí lækkar verð á Einfalda pakkanum um 2.000 kr og hann kostar því nú 12.900 kr. í stað 14.900 kr. áður.


Gagnaflutningur
Viðbótarpósthólf hjá simnet.is póstþjónustu Símans mun hækka um 100 kr. og kosta 300 kr. eftir breytingu. Stækkun á pósthólfi í 30 GB mun hækka um 50 kr. og kosta 1.250 kr.

Aðrar breytingar á verðskrá gagnaflutnings má sjá hér.

Yfirlit yfir allar verð- og skilmálabreytingar sem munu taka gildi þann 1. maí 2023 má nálgast hér.

"
Yfirlit yfir verð- og skilmálabreytingar 1. júní 2023
Grein2 mynd
No items found.
Grein3 Mynd
Grein4 Mynd
No items found.
Komdu til Símans