Verð- og skilmálabreytingar 1. febrúar 2025
01. febrúar 2025
Þann 1. febrúar 2025 mun Síminn gera breytingar á verðskrá sinni ásamt því að uppfæra nokkra skilmála.

Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, senda okkur tölvupóst, hringja í 550 6000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjalausnum Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
FASTLÍNA
Áskriftarleiðin Endalaus heimasími mun hækka um 300 kr. og mun kosta 2.200 kr. eftir breytinguna.
FARSÍMI
Áskrift 1 GB mun verða að Áskrift 5 GB en mun hækka um 200 kr. Áskrift 15 GB, Endalaus með Netinu hækkar um 50 kr. Áskrift 50 GB hækkar um 200 kr og mun kosta 5.600 kr.
INTERNET
Endalaust Net hækka um 100 kr. og mun kosta 8.300 kr, Net 100 GB mun breytast í Net 300 GB og mun hækka um 200 kr. og kosta 6.400 kr en innifalið gagnamagn verður 300 GB í stað 100 GB áður.
SJÓNVARP SÍMANS
Leiga á myndlykli mun hækka um 50 kr. og mun því kosta 1.500 kr. á mánuði. Verð á straumum mun hækka um 100 kr. og kosta 1.100 kr.
Síminn Heimur – Allt hækkar um 200 kr sem og Síminn Heimur – Evrópa en Síminn Heimur – Grunnur mun hækka um 100 kr.
HEIMILISPAKKAR
Heimilispakkinn mun hækka um 300 kr. og mun því kosta 23.560 kr. og Þægilegi pakkinn sömuleiðis og mun kosta 23.500 kr. Einfaldi pakkinn mun hækka einnig um 300 kr. en mun kosta 14.500 kr.
SKILMÁLAR
Almennir viðskiptaskilmálar Símans ásamt skilmálum fyrir internetþjónustu verða uppfærðir og taka þeir gildi 1. febrúar 2025. Í almennum viðskiptaskilmálum er sagt frá því að reikningar frá Símanum verða ekki lengur birtir í heimabanka viðskiptavina ásamt því að skerpt er á umfjöllun um ábyrgð viðskiptavina vegna uppsagnar á þjónustu, áhrif uppsagna á áskriftarpakka og ábyrgð viðskiptavina vegna skila á búnaði ásamt því að bætt er við umfjöllun um bótaferil Símans. Í skilmálum internetþjónustu er skerpt á umfjöllun um óheimila samnýtingu.