Verðbreytingar hjá Símanum 1. apríl 2021
Reykjavík 1. mars 2021
Þann 1. apríl 2021 mun Síminn breyta verðum á Spotify áskriftum.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Upplýsingar um breytingar á vörum og skilmálum þeirra á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800 4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
SPOTIFY
Áskrift að Spotify Premium mun hækka um 150 kr. og mun því kosta 1.700 kr. í stað 1.550 kr áður.
Spotify Family áskrift mun hækka um 550 kr. og því kosta 2.900 kr. eftir breytinguna í stað 2.350 kr. áður.
Verðhækkunin kemur til vegna verðhækkana hjá Spotify sjálfum sem leiða til þessara verðbreytinga hjá Símanum.
Nánara yfirlit yfir þær verðbreytingar sem taka gildi þann 1. febrúar 2021 má sjá hér.