Verðbreytingar hjá Símanum 1. febrúar 2020
Reykjavík 31. desember 2019
Þann 1. febrúar 2020 mun Síminn breyta verðum á nokkrum þjónustum.
Skilmálar fyrir Internetáskrift og fyrir Sjónvarpsþjónustu Símans eru einnig uppfærðir sem við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
Breytingar á skilmálum
TALSÍMI
200 króna hækkun verður á áskriftarleiðunum 0 kr. mínútan í heimasíma á bæði hefðbundnum tengingum yfir koparlínur sem og ISDN, Atvinnusími yfir kopar og ISDN, áskriftunum Borðsími leið 1 og 2, Endalaus heimasími yfir koparlínur og ISDN.
Gamlar áskrifarleiðir sem heita Heimasími – 3 GSM yfir koparlínur og ISDN munu hætta og þeir viðskiptavinir sem í þeim eru munu færast yfir í áskriftarleiðina Endalaus heimasími.
Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800-4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
Nánara yfirlit yfir þær verðbreytingar sem taka gildi þann 1. febrúar 2020 má sjá hér.