Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar verðbreytingar.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans.
Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins ásamt Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store fyrir iPhone og Android síma.
TALSÍMI
Eftirfarandi áskriftir í talsíma munu hækka um 200 kr.
Heimasími - Endalaust (POTS). Mun kosta 2.700 kr í stað 2.500 kr.
Heimasími - Heimasímar (POTS). Mun kosta 1.900 kr. í stað 1.700 kr.
Heimasími - Heimasímar (ISDN). Mun kosta 2.200 kr. í stað 2.000 kr.
Nánara yfirlit yfir þær verðbreytingar sem taka gildi þann 1. janúar 2021 má sjá hér.
Upplýsingar um verð- og skilmálabreytingar á fyrirtækjamarkaði má fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800 4000.