Verðbreytingar 1. júní 2026
30. apríl 2026
Þann 1. júní 2026 mun Síminn gera breytingar á verðskrá sinni.

Eftirfarandi breytingar á verðskrá farsíma- og talsímaþjónustu Símans munu eiga sér stað frá og með 1. júní 2026.
Yfirlit yfir verðbreytingar 1. júní 2026
Farsími
- Endalaus með netinu hækkar um 200 kr.
- Farsími – Vild hækkar um 200 kr.
Talsími
- Netsími hækkar um 500 kr.
Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta best þeirra þörfum.
Hægt er að hafa samband:
- Netspjall á www.siminn.is
- Sími: 550 6000
- Tölvupóstur: siminn@siminn.is
- Heimsækja verslanir Símans
Við minnum jafnframt á Þjónustuvef Símans þar sem viðskiptavinir hafa yfirsýn yfir notkun og áskriftir. Einnig má nálgast yfirsýn í Síma appinu sem er aðgengilegt í App Store og Play Store.
Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði má nálgast hjá Fyrirtækjalausnum Símans í síma 550 6000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.