Tilbaka
Tilbaka
Til baka
Senda fyrirspurn

Veldu erindi

Fylltu út eitt af neðantöldu!

Takk fyrir!

Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Panta
Nafn á þjónustu
Undirtexti á
Þjónustuvefnum.
Texti undir formi1
Texti undir formi2
Viðhengi texti
Hleð inn skrá...
fileuploaded.jpg
Upload failed. Max size for files is 10 MB.
Texti falinn
0
Ertu hjá Símanum?
Verð samtals:
22.000
kr./ mán.
Færslu/útskriftargjald bætist á reikning skv. verðskrá.
Takk fyrir!
Við munum hafa samband eins fljótt og unnt er.
Til baka
Úps!
Eitthvað hefur farið úrskeiðis. Vinsamlegast endurhlaða síðu og reyndu aftur.
Pöntunarform
Fréttir
2019-11-01
Verðbreytingar 1. desember 2019

Verðbreytingar 1. desember 2019

Áætlaðar verðbreytingar hjá Símanum 1.desember

Verðbreytingar 1. desember 2019
Grein1 myind

Reykjavík 1. desember 2019

Þann 1. desember 2019 mun Síminn breyta verðum á nokkrum þjónustum.


Skilmálar fyrir GSM áskrift og GSM Frelsi eru einnig uppfærðir. Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði er heimilt að segja upp þjónustum sínum án skaðabóta sætti þeir sig ekki við þessar breytingar.

Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans.

Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins.

Engir aukareikningar berast nú fyrir umfram netnotkun í farsímaáskrift. Viðskiptavinir fá SMS eða tölvupóst þar sem þeir geta breytt eða stækkað áskrift sína í takt við notkun. Ef viðskiptavinir kjósa að stækka ekki eða breyta áskrift sinni mun Síminn hægja á nethraða í stað þess að senda aukareikninga fyrir umframnotkun.

Sé netfang viðskiptavinar ekki á skrá hjá Símanum sendum við SMS. Við mælumst til að viðskiptavinir skrái netfangið einnig en það er gert með auðveldum hætti á Þjónustuvef Símans. Netáfyllingar á Krakkakorti munu ekki lengur hafa sérstakann gildistíma. Áfyllingar munu því ekki fyrnast og vera innifalið á Krakkakorti þangað til að áfyllingin raunverulega er kláruð.

FARSÍMI

Verðskrá fyrir símtöl í fundarsíma taka breytingum. Upphafsgjald hækkar í 17 kr. í stað 13 kr. áður og mínútuverð hækkar í 27 kr. í stað 25 kr. 3G sumaráskrift mun hætta.

Netáskrift, áskrift sem innifelur aðeins gagnamagn þar sem lokað er fyrir talrás mun hætta. Allar farsímaáskriftir Símans innihalda gagnamagn sem ætti að þjóna þörfum hvers og eins og bendum við nú á þær. Símtöl til útlanda með 1100 forskeytinu mun hætta, verðskrá fyrir símtöl hringd með 1100 forskeyti munu kosta það sama og þegar hringt með 00.

TALSÍMI

Verðskrá fyrir símtöl í fundarsíma taka breytingum. Upphafsgjald hækkar í 17 kr. í stað 15 kr. áður og mínútuverð hækkar í 27 kr. í stað 10 kr.

TÖLVUSÍMI

Verðskrá fyrir símtöl í fundarsíma taka breytingum. Upphafsgjald hækkar í 17 kr. í stað 15 kr. áður og mínútuverð hækkar í 27 kr. í stað 10 kr.

GERVIHNATTAÞJÓNUSTUR

Verðskrá fyrir símtöl í fundarsíma taka breytingum. Upphafsgjald hækkar í 17 kr. í stað 13 kr. áður og mínútuverð hækkar í 27 kr. í stað 23 kr. Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800-4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.

Nánara yfirlit yfir þær verðbreytingar sem taka gildi þann 1. desember 2019 má sjá hér.

"
Verðbreytingar
Grein2 mynd
No items found.
Grein3 Mynd
Grein4 Mynd
No items found.
Komdu til Símans