Reykjavík, 1. október 2019.
Þann 1. nóvember 2019 mun Síminn breyta verðum á nokkrum áskriftarleiðum og þjónustum. Skilmálar vegna lánssíma og vörukaupa hafa einnig verið uppfærðir ásamt því að nú eru kynntir skilmálar vegna tækja í viðgerð.
Síminn hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þær breytingar sem þá taka gildi. Við hvetjum viðskiptavini Símans til að hafa samband við okkur og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustum sem henta best þeirra notkun. Hægt er að opna netspjall á siminn.is, hafa samband í gegnum tölvupóst, hringja í 8007000 eða heimsækja verslanir Símans. Við minnum líka á Þjónustuvef Símans sem veitir öllum viðskiptavinum fulla yfirsýn yfir notkun og áskriftir hvers og eins.
Talsími
- Upphafsgjald úr talsíma hækkar um 2 kr. Var áður 15 kr. en verður 17. kr eftir breytinguna.
- Aðgangur að Open VPN í Símavist hækkar um 100 kr. Mun því kosta 500 kr. í stað 400 kr.
Farsími
- Netáskrift 1 GB með Fyrirtækjaáskrift fer úr 1700 kr. í 2000 kr. en innifalið gagnamagn verður 5GB eftir breytingu í stað 1GB.
- Upphafsgjöld fyrir símtöl í fundarsíma Símans hækka um 6,2 kr og verða upphafsgjöld því 17 kr í stað 10,77 kr.
- Mínútuverð fyrir símtöl í fundarsíma Símans hækka um 2,1 kr. og verða því 27 kr. í stað 24,89 kr.
- Í mínútuáskrift sem er gömul áskriftarleið verður ekki lengur í boði að skrá vin og núverandi afsláttarkjör falla niður. Í Frelsi verður ekki lengur hægt að hringja á 0 kr. í valinn vin þegar keyptar eru áfyllingar fyrir 1000 kr. eða hærri upphæð.
Snjallari bílar
- Mánaðargjald Snjallari Bíla hækkar um 10 kr. Fer úr 1990 kr í 2000 kr.
Fyrirtækjalausnir
- Upplýsingar um breytingar á vörum á fyrirtækjamarkaði er að fá hjá Fyrirtækjaþjónustu Símans í síma 800-4000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á radgjof@siminn.is.
Yfirlit yfir þær verðbreytingar sem taka gildi þann 1.nóvember 2019
Yfirlit yfir Skilmálar