Hæ Wifi 7!

02. maí 2024

Síminn er fyrstur íslenskra fjarskiptafyrirtækja til að bjóða heimilum upp á WiFi 7 sem tryggir meiri hraða, betri upplifun, styður aukinn fjölda tækja, lægri svartíma og aukið öryggi.

imageHero

Síðan Síminn byrjaði að bjóða upp á fyrstu háhraðatengingar sem í boði voru á Íslandi fyrir 26 árum síðan hefur þróun þeirra verið hröð, það sem í upphafi var 256 kb/s sítenging yfir koparþræði er í dag allt að 10 Gbit/s yfir ljósleiðara. Samhliða þróun nettenginga hefur almenn snjallvæðing ásamt auðvitað innreið snjallsímans tekið enn stærri stökk og fjöldi tengdra tækja á heimilum aldrei verið fleiri.

Þróun þráðlausra neta hefur ekki haldið í alla þessa þróun þó að vissulega hafi mikið gerst á þeim enda tækninnar. Hraði þráðlausra neta hefur þannig alltaf verið minni en þær tengingar sem hafa verið í boði, þangað til nú.

Síminn býður upp á netbeina fyrir heimili sem styðja við WiFi 7 og er þannig fyrstur íslenskra fjarskiptafyrirtækja að bjóða upp á slíkan búnað. Búnaðurinn sem kemur frá TP-Link nýtir alla nýjustu tækni sem í boði er í dag til að hægt sé að hámarka nettengingar til heimila og skila góðri upplifun í öll tæki, hvort sem þau eru að nota þráðlaus net eða netsnúru. Af fleiri nýjungum sem WiFi 7 býður upp á mætti nefna betri rafhlöðuendingu snjalltækja.

Einnig er í boði að fá WiFi magnara sem byggja á Mesh-tækni sem tryggja enn betra þráðlaust samband um allt heimilið og tæki færast sjálfkrafa á milli senda til að vera alltaf í besta mögulega sambandinu.

Þar sem WiFi 7 er nýjasta nýtt í heimi tækninnar er ekki víst að öll tæki heimilisins styðji við hana en WiFi 7 netbeinar styðja við alla eldri WiFi staðla og færa því frábært net í öll tæki. Ef tækið þitt styður WiFi 7 færðu bestu mögulegu upplifun.

News Carousel