Olís deildin verður sýnd í Sjónvarpi Símans í allan vetur og verða allir leikir sýndir í beinni útsendingu.
Síminn verður tæknilegur bakhjarl Olís deildarinnar og nýtum við þekkingu okkar og sjónvarpskerfi í samstarfi við HSÍ þannig að handboltinn sé aðgengilegur um allt land í Sjónvarpi Símans.
HSÍ mun setja upp nýjustu kynslóð sjálfvirkra myndavéla sem keyrðar eru áfram af gervigreind og félögin sjálf munu lýsa sínum heimaleik. Þannig virkjum við handboltasamfélagið allt og færum stemmninguna heim í stofu og í fyrsta sinn verða allir leikir deildarinnar í beinni útsendingu.
Í hverri viku verður einn leikur í Olís deild karla og kvenna í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans með hefðbundnum hætti og ítarlegri umfjöllun. Áskrift að Olís deildinni verður gjaldfrjáls fyrstu tvo mánuðina og mun síðan kosta 1.290 kr. á mánuði.
Í fyrstu umferð verður sýnt frá öllum leikjum á rásum 401 til 406 í Apple TV og snjalltækjum sem eru sendir út með Spiideo myndavélum. Tímaflakk verður ekki aðgengilegt í fyrstu umferð en mun þó koma og mun koma inn sérstök mappa sem mun halda utan um allar beinar útsendingar og upptökur frá leikjum, og mun hún heita Handboltapassinn.