Öruggari á netinu
Einfalt öryggi fyrir alla fjölskylduna með áreiðanlegu og traustu neti okkar. Vertu öruggari á netinu heima og á ferðinni.

Vernd heima og á ferðinni
Netvarinn fylgir þér. Sama verndin, tvær tengingar. Síminn verndar þig hvort sem þú ert á heimanetinu eða á farsímaneti Símans.

Netvari heima
Verndar tæki sem tengjast internetinu heima.
Hjálpar til við að vernda tæki sem tengjast heimanetinu, svo sem síma, tölvur og spjaldtölvur.
- Símar, tölvur, spjaldtölvur o.fl.
- Fjölskylduvernd

Netvari í farsíma
Verndar þig þegar þú notar farsímagögn Símans.
Hjálpar til við að vernda þig þegar þú notar farsímanet Símans.
- Engin sérstök uppsetning
- Vörn á ferðinni

Netvarinn hjálpar til við að verja þig og fjölskylduna gegn skaðlegum og óæskilegum vefsíðum, hvort sem þú ert tengd/ur heimanetinu eða notar farsímagögn Símans.

Hvað gerir Netvarinn?
Netvarinn er öflug vörn sem lokar fyrir óæskilegt efni á netinu. Netvarinn fylgir með öllum netáskriftum Símans og þú getur kveikt á honum á þjónustuvefnum okkar.
Vita meiraSkaðlegar vefsíður
Hjálpar til við að loka á aðgang að þekktum hættulegum vefsíðum.
Phishing og svik
Getur hjálpað til við að stöðva síður sem reyna að blekkja þig til að gefa upp persónuupplýsingar.
Óæskilegt efni
Með Netvara heima er hægt að velja hvaða efnisflokka á að loka á.
Fjölskylduvernd
Veldu verndarstig sem hentar þeim sem nota tenginguna – öruggara net fyrir alla fjölskylduna.


Meiri ró fyrir fjölskylduna á netinu
Börn nota netið heima og á ferðinni. Netvarinn hjálpar til við að skapa öruggara netumhverfi með því að loka á valdar tegundir vefsíðna.
- Grunnvörn
Vörn gegn þekktum skaðlegum síðum. - Jafnvægi
Grunnvörn ásamt viðbótarvörn gegn efni sem getur verið óviðeigandi fyrir börn. - Strangari vörn
Fleiri takmarkanir á efni á netinu.

Stilltu verndina eftir þínum þörfum
Á Mínum síðum sérðu stöðu Netvarans og getur breytt verndarstigi fyrir hvert númer eða tengingu, hvenær sem er.
Netvari heima verndar tæki á heimanetinu. Netvari í farsíma virkar þegar þú notar farsímanet Símans.
Já, farsímavörnin virkar yfir Wi-Fi frá öðrum.
Já, það er lítið mál. Í hvert sinn sem eitthvað tæki reynir að opna vefsíðu athugar Netvarinn hvort sú síða sé á lista yfir síður sem innihalda efni sem þú hefur lokað fyrir. Ef síðan kemur upp á bannlista er ekki hægt að opna hana á netinu þínu.
Netvarinn hjálpar til við að loka á þekktar skaðlegar vefsíður. Með Netvara heima er einnig hægt að velja tiltekna efnisflokka.
Nei, Netvarinn er ekki vírusvörn. Hann hjálpar til við að loka á aðgang að völdum vefsíðum.
Netvarinn fylgir með öllum netáskriftum Símans og þú getur kveikt á honum á þjónustuvefnum okkar.