
Premium myndlykill
Sjónvarp og streymi á einum stað. Hljóðhönnun frá Bang & Olufsen, upplifun með Dolby hljóðtækni.

Uppfærðu sjónvarps- og streymisupplifun þína
Premium myndlykill Símans færir þér bestu mögulegu upplifunina. Myndlykillinn kemur með innbyggðum hágæða hátalara með hljóðhönnun frá Bang & Olufsen og Bluetooth fjarstýringu. Tryggðu þér hámarks gæði og þægindi meðan þú nýtur þess að horfa á Sjónvarp Símans.

Ótrúlega nákvæmt hljóð
Frá árinu 1925 hafa Bang & Olufsen verið leiðandi í hljómgæðum og nú færa þau þá aldargömlu reynslu beint inn í stofuna hjá þér.
Hljóðverkfræðingar þeirra hafa hannað og fínstillt hljóðið í myndlyklinum til að skila tæru og kraftmiklu hljóði sem veitir einstaka hljóð upplifun.

Premium myndlykillinn sameinar öflugt efni, fyrsta flokks hljóð og nýjustu tækni í einni heildstæðri lausn.


Kraftmikið hljóð í tveimur hátölurum
Bættu hljóðupplifun þína með tveimur bakhátölurum. Hátalararnir veita kraftmikinn og skýran hljóm sem fyllir rýmið. Veggfestingar fylgja með hátölurunum og eru einfaldar í uppsetningu.
Bættu við þig pari af bakhátölurum fyrir 1.000 kr. / mán.

360° hljóðupplifun
Með Premium myndlyklinum og tveimur bakhátölurum uppfærir þú hljóðupplifun á næsta stig. Innbyggði hátalarinn í myndlyklinum skilar áhrifamiklum hljóm og með hátalara parinu færðu 360° hljóm sem umlykur þig.

Framúrskarandi afþreying
Sjáðu heilan heim af afþreyingu í skýrari og skarpari myndum. Ef uppáhaldsefnið þitt er framleitt í 4K, færðu topp myndgæði með Premium myndlyklinum. Hlaðborð af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, barnaefni og íþróttaefni. Haltu utan um uppáhalds efnið þitt á einum stað.
Með nýja Premium-myndlykli Símans, sem þróaður er í samstarfi við Bang & Olufsen, erum við að færa heimabíóupplifun með Dolby hljóðtækni beint inn í stofu landsmanna.
Myndlykillinn er hannaður til að skila framúrskarandi hljóð- og myndgæðum í einu og sama tækinu og setur þannig ný viðmið í upplifun á sjónvarpsefni á Íslandi.
Við vildum hanna tæki sem fólk hefur raunverulegt gagn af í stofunni. Þú getur tengst myndlyklinum og spilað þína eigin tónlist í gegnum hátalarana, þótt slökkt sé á sjónvarpsskjánum sjálfum. Hann leysir því af hólmi hefðbundin hljómtæki í stofunni. Nánar hér hvernig þú tengir Spotify við myndlykilinn.
Lykillinn er hannaður til að nýta þá tengingu sem heimilið hefur sem best og skila alltaf bestu mögulegu gæðum. Ljósleiðari er besta leiðin til að tryggja stöðugleika, sérstaklega þegar horft er á efni í 4K upplausn, en myndlykillinn vinnur vel með öllum hefðbundnum, stöðugum nettengingum og tryggir að hljóð og mynd njóti sín til fulls.
Dolby hljóðtækni er tæknilausn sem hannað er til að þjappa, flytja og endurspila hljóð með sem mestum gæðum. Í stað þess að hljóð sé bara dreift upp í vinstri og hægri hátalara (e. stereo), notar Dolby hljóðtækni háþróað reiknirit til að staðsetja hljóð í rými svo áheyrandinn fái upplifun sem líkist raunveruleikanum.
Það er hægt að nota öpp eins og Netflix, Amazon Prime og Youtube beint í gegnum myndlykilinn sjálfan og þá spilast hljóðið í gegnum myndlykilinn og hátalarana sem eru tengdir honum.
Hins vegar ef þú notar önnur öpp beint í gegnum sjónvarpið (ekki í gegnum myndlykilinn) þá spilast hljóðið í sjónvarpinu sjálfu. Við erum þó að vinna að innleiðingu á svokallaðri eARC-tækni (Enhanced Audio Return Channel). Hún gerir sjónvarpinu kleift að senda hljóðið sitt beint yfir í myndlykilinn.